Globales Nova Apartamentos er snoturt þriggja lykla íbúðahótel, staðsett um 200 metra frá San Matías ströndinni í Palmanova. Á hótelinu er útisundlaug, garður og innilaug ásamt heitum potti. Frítt wifi er í gestamóttöku.
GISTING
Íbúðir og studio eru loftkældar, með eldhúskrók, hraðsuðuketil, mikró ofn, kæliskáp og gervihnattasjónvarp. Wifi ( aukagjald) Öryggishólf ( aukagjald)
Baðherbergi eru með baðkari og hárþurrku. Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn.
VEITINGAR
Á la Carte veitingastaður er á hótelinu, bar-lounge/setustofa og Nova Terrace bar (takmarkaður opnunartími er á Nova Terrace)
AFÞREYING:
Útisundlaug, innilaug og jacuzzi, sólbaðsaðstaða, sjónvarpsherbergi og billiard.
Ferðamenn á Mallorca greiða gistiskatt sem ekki er hluti af verði okkar og er innheimtur við innritun af hótelinu sjálfu. Hann er reiknaður á mann fyrir hverja nótt á gististaðnum. Upphæðin er breytileg eftir opinberri stjörnugjöf gististaðana.
Upplýsingar
Av. Cas Saboners, 6 07181 Palmanova - Mallorca
Kort