Costa Adeje

Labranda Suites er fallegt 4 stjörnu hótel, mjög gott fyrir fjölskyldur, staðsett á hinu vinsæla Costa Adeje svæði, aðeins 400 metra frá Bláfána ströndinni Playa Fanabe.

2 útisundlaugar þar af ein barnalaug., barir og veitingastaðir.. Nálægt hótelinu eru verslanir og veitingastaðir og Siam Park er aðeins í 1.5 km fjarlægð frá hótelinu.

 

GISTING

Fjölskylduherbergin eru með stofu og svefnherbergi, samtals um 38 fm og svalirnar eru um 5 fm að stærð. Hægt er að velja  standard herbergi,  með garðsýn eða sjávarsýn.

Öll herbergi eru loftkæld, með  tvö sjónvörp með alþjóðlegum rásum,  annað í stofu og hitt í svefnherbergi, hraðsuðuketill, kæliskápur, öryggishólf (aukagjald) sími, baðherbergi eru með baðkari og sturtu, hreinlætisvörum og

hárþurrku. 

 

VEITINGAR

El Paladar er hlaðborðsveitingastaður fyrir þá sem eru með allt innifalið, þar á meðal drykkir (innlendir) Gestir geta valið um að fá hádegisverð við sundlaugarbarinn.    Tapas Restaurant (aukagjald) muna að panta borð.  Sunset Pool bar og  Night bar.  Athugið að drykkir eru afgreiddir til kl. 23.00 eftir það þarf að greiða aukagjald fyrir drykki.  Strand eða sundfatnaður er ekki leyfður á veitingastöðum.

 

BÖRNIN

Barnalaug, leiksvæði, bulsgarður, og íþróttasvæði. Meepoklúbbur, Kids & Teens klúbbur og leikherbergi. Skemmtidagskrá fyrir fyrir alla aldurshópa.

 

AFÞREYING

Útisundlaugar, sólbekkir, sólbaðsaðstaða, líkamsrækt og vellíðunarsvæði. Hægt er að fá nuddmeðferðir gegn gjaldi.  

 

Í NÁGRENNI HÓTELS

Plaza del Duque verslunarmiðstöðin 0.5 km., Gran Sur verslunarsvæði 0.6 km., El Duque Castle 0.8 km., La Pinta ströndin 1.1 km., Aqualand 1.3 km., Siam Park 2,1 km., Golf Costa Adeje 3 km., 

 

 

Upplýsingar

Av. de Bruselas, 8, 38660 Costa Adeje , Tenerife

Kort