Checkin Bungalow Atlantida er gott 3 stjörnu íbúðarhótel staðsett á Los Cristianos, Tenerife. Hótelið er staðsett í aðeins 250 m fjarlægð frá Playa De Los Tarajales strönd. 3 sundlaugar og sólbaðsaðstöða bjóða gesti velkomna til að njóta slökunar og veðurs á Tenerife.
Gisting:
íbúðirnar hafa hellstu þægindi, m.a. sjónvarp, síma, wifi, eldhúskrók og ísskáp. Hægt er að fá loftkælingu gegn gjaldi. Einnig hafa öll baðherbergin sturtu eða baðkar. Svalir eða verönd er á öllum íbúðum.
Aðstaða-Afþreying:
Á hótelinu eru 3 sundlaugar, barnalaug og sólbaðsaðstaða. Einnig er hægt að njóta minigolfs, skvass- og tennisvalla gegn gjaldi en líkamsrækt hótelsins er opin öllum. Skemmtidagksrá er á kvöldin auk leikvallar og krakkaklúbbs fyrir smáfólkið. Innan 3 km fjarlægð er í næsta golfvöll.
Veitingar:
Hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu og býður hann uppá spænska rétti auk annara. Einnig er bar og sundlaugarbar.
Staðsetning:
Hótelið er vel staðsett í aðeins 250 m fjarlægð frá strönd, veitingastöðum og börum utan hótelsins. 14 km frá flugvelli.
Aðbúnaður:
Sturta/baðkar
Sundlaugar
Loftkæling (gegn gjaldi)
Wifi
Hlaðborðsveitingastaður
Krakkaklúbbur
Skemmtidagskrá
Ísskápur
Eldhúskrókur
Tennis- og skvassvöllur (gegn gjaldi)
Leikvöllur
Líkamsrækt
Upplýsingar
Londres s/n Playa De Los Cristianos
Kort