Lake Garda Resort er mjög gott 4 stjörnu hótel sem situr í hlíðum Garda með dásemlegu útsýni yfir vatnið. Hótelið er umkringt ólífutrjám og aðstaðan á svæðinu er glæsileg. Á svæðinu eru tvær sundlaugar, ein af þeim er barnalaug og nóg er af sólbekkjum í kring um laugarnar. Öll herbergin og íbúðirnar eru ýmist með stórri verönd eða svölum ásamt því að vera með loftkælingu. Lake Garda Resort er einnig nálægt nokkrum af bestu golfvöllunum á Gardavatnssvæðinu.
Gisting:
Öll herbergin og íbúðirnar eru ýmist með stórri verönd eða svölum ásamt því að vera með loftkælingu. Herbergin eru smekklega hönnuð og hafa öll hellstu þægindi, m.a. ókeypis wifi, sjónvarp, síma og öryggishólf, einnig hafa baðherbergin baðkar/sturtu og hárþurrku.
Aðstaða-Afþreying:
Aðstaðan á Lake Garda Resort er glæsileg. Á svæðinu eru tvær sundlaugar, ein af þeim er barnalaug og nóg er af sólbekkjum í kring um laugarnar.
Veitingar:
Fjölskylduvænn veitingastaður er á hótelinu með góðum og fjölbreyttum réttum. Auk þess er kaffihús á svæðinu.
Staðsetning:
Hótelið er staðsett í hlíðum Gardavatns og stutt í helstu ferðamannastaði. Hótelið er innan við 3 km frá golfvelli, 9 km frá Desenzano sul Garda og 13 km frá Salò.
Aðbúnaður:
Sturta/Baðkar
Sundlaug
Barnalaug
Loftkæling
Ókeypis wifi
Sjónvarp
Sími
Veitingastaður
Kaffihús
Mini-bar
Upplýsingar
via dei Canestrelli 7 25080 Moniga del Garda
Kort