Casteinuovo del Garda

Gardaland Magic er 4 * hótel sem býður upp á töfrandi dvöl.  Hótelið er byggt upp sem ævintýraheimur þar sem þú hittir einhyrninga og fljúgandi dreka.  

Á hótelinu eru 128 herbergi sem eru öll byggð á þema frá töfrandi heimum.  Þú getur valið að dvelja í töfrandi skógi, töfrandi ískastala eða í galdrahúsi.  Við bókun þarf að taka fram hvaða þema maður velur fyrir sitt herbergi. 

ATH vinsamlegast kynnið ykkur vel samgöngur til og frá Verona.  Ef þið eruð ekki á bíl þá er nauðsynlegt að athuga hvernig almenningssamgöngur milli Garda og Verona virka. Næsta lestarstöð er 2 km frá og er ókeypis skutlþjónusta í boði á hálftíma fresti. 

Ókeypis bílastæði er fyrir hótelgesti sem og ókeypis skutlþjónusta sem tengir hótelið við Gardaland Park, Gardaland SEA LIFE sædýrasafnið og nýja LEGOLAND® vatnagarðinn. Hótelið er einnig í stuttri fjarlægð frá Gardavatni, sem gerir kleift að fara í stórkostlegar skoðunarferðir og hægt er að stunda ýmsa íþróttaiðkun.

ATH að inngangur í Gardaland garðinn er EKKI innifalinn í hótelverðinu.  Verðið í garðinn er ca 40 evrur á mann og frítt fyrir þá sem eru innan 1 meters á hæð.  

 

Upplýsingar

Via Derna, 4 37014 Castelnuovo del Garda

Kort