Albufeira Portúgal, menning, sól og sandur
Þær eru ekki margar sólarstrendurnar í Suður-Evrópu þar sem sólþyrstir íbúar norðurálfu geta flatmagað innan um geðþekka trillukarla sem dytta að netum sínum og bátum.
Ofan við ströndina blasir við töfrandi ævintýramynd þar sem hvítkalkaðar byggingar, sumar með márísku yfirbragði, tylla sér á klettasyllur meðfram tæru Atlantshafi. Í sólarhéraðinu Algarve er einnig ósnortin náttúra og heillandi menning og hvarvetna mætir ferðamönnum portúgölsk hlýja og gestrisni.
Algarve er best fyrir:
- Milt og gott vor og haust
- Jákvæðir heimamenn
- Fallegar strendur
- Fjölskylduvænt umhverfi

- Golf
- Markaðir
- Fjölbreyttar göngu– og hjólaleiðir
- Slide & splash skemmtigarðurinn
- Aqualand Zoo
- Marine Aqua Show Park
- Flogið í beinu flugi til Faro

- Flugtími U.þ.b. 4 klst.
- Akstur frá flugvelli til Albufeira 40 mínútur
- Tungumál Portúgalska
- Gjaldmiðill Evra
- Hiti Sumar 26°
- Tími Sumar +1 klst.

ALBUFEIRA
Þessi gamli fiskimannabær, er orðinn einn af þekktari ferðamannastöðum í Algarve héraði og ekki að ástæðulausu. Þar sem áður fyrr var lítill og snotur bær þar sem sjómenn réru til fiskjar og dyttuðu að netum sínum, hefur vaxið upp nútímalegur og líflegur ferðamannabær.
Í bænum eru tveir kjarnar, annars vegar gamli bærinn við fiskimannaströndina og hins vegar „Laugavegurinn”
Gamli bærinn er sjarmerandi, státar af kirkjum bæjarins og öllum elstu byggingunum. Bæjartorgið iðar af mannlífi með úrvali af veitingastöðum, kaffihúsum og börum. Í hinum þröngu götum út frá torginu má finna margar skemmtilegar sérverslanir sem taka vel á móti ferðamönnum. Á sumrin koma hljómsveitir og látbragðsleikarar, sem troða upp gestum og gangandi til skemmtunar.
Í hinum enda bæjarins er „Laugavegurinn“ Þar standa í röðum veitingastaðir, ísbúðir, kaffihús, og verslanir af öllu hugsanlegu tagi. Neðst við Laugaveginn, næsta Oura ströndinni eru diskóbarirnir með miklu fjöri, stundum langt fram á nótt.
Næturlífið á Laugaveginum er rífandi skemmtilegt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi
FJÖLBREYTT ÚRVAL GISTISTAÐA