Strandferð til Balí
Balí er sönn paradís á jörðu og hefur upp á að bjóða hvítar strendur, tæran sjó og iðandi mannlíf - Komdu og upplifðu þetta ævintýri með okkur!

Um Balí ferðina!
Hvenær? 12. til 27. mars 2024.
Þægileg ferð með íslenskri farastjórn og fyrsta flokks flugum til og frá Balí. Lágmarks biðtímar í millilendingum, töskur fara alla leið og framúrskarandi boutique hótel sem bjóða upp á bæði lúxus og lókal upplifun.
Flug? Icelandair + Emirates. Aðeins einn flugmiði alla leið, ekkert vesen.
Hvar? 13 nætur í vellystingum á ströndinni í Sanúr. Upplifðu það besta sem Balí hefur uppá að bjóða á besta stað á eyjunni. Stutt í alla afþreyingu og úrval veitingastaða, skemmtistaða og verslana.
Verð frá? 379.900 á mann í tvíbyli. Val um 3 hótel:
101 Oasis Hotel við strandgötu á mann frá 379.900 kr.
Puri Santrian strandhótelið á mann frá 469.900 kr.
Hyatt Sanur á ströndinni á mann frá 559.900 kr.
Hápunktar ferðarinnar
Paradísareyjan Balí bíður eftir þér með ótrúlega upplifun, ólíka öllu öðru. Hamingjusamir heimamenn, endalaus sól og hvítar strendur.
Ferðin er fyrsta flokks og hvort sem þú vilt slappa af og hugleiða eða halda á vit ævintýranna þá eru frábærar dagsferðir í boði.
• Brimbretti, hjóla- og gönguferðir og köfun
• Jóganámskeið, spa og ótrúlegt umhverfi til þess að hugleiða
• Upplifðu ótrúlega náttúru
• Samvera með skemmtilegu fólki. Ævintýragjörnum íslendingum og/eða lífsglöðum heimamönnum.
Íslensku fararstjóri: Apríl Harpa Smáradóttir - sem þekkir Balí mjög vel.
Viltu vita meira um ferðina - sendu póst á info@sumarferdir.is
Apríl Harpa Smáradóttir - Enginn þekkir Balí betur en Apríl Harpa sem hefur búið á eyjunni í fjölda ára og rekur þar vinnustofu og verktakafyrirtæki auk þess að kenna jóga og sinna ævintýraþyrstum ferðalöngum frá Íslandi. Apríl mun, ásamt innlendum leiðsögumönnum, taka á móti farþegum við komu og sinna þeim með hvað eina sem hægt er, hvort heldur sem köfun eða fljótasiglingar, valin listagallerí eða besta næturklúbbinn, hjólaferðir eða miðnæturmessu í fjallahofi.
Skoða hótel - smella sér beint í bókunarvél!
Jóga - köfun - spa - gönguferðir - hjólaferðir - strandpartý - sörf - skútusiglingar -
endalaus ævintýri...
Úrvals hótel á Balí



101 OASIS HOTEL ***
101 hótelið í Sanúr er frábærlega staðsett við strandgötuna, spölkorn frá ströndinni sjálfri og aðgengi auðvelt.
Það er léttur blær yfir hótelinu með opnum veitingastað fram á götuna þar sem ávallt hljómar þægileg og grúví lounge músík. Herbergin eru í kringum skemmtilegar sundlaugar og anddyri, sundlaug og veitingar blandast skemmtilega saman.
PURI SANTRIAN ****
Puri Santrian er eitt af elstu og traustustu hótelum í Sanúr og hefur verið uppáhald fjölda gesta sem snúa þangað aftur og aftur til að njóta strandarinnar og þeirra tengsla sem hótelið hefur við lista- og menningarlíf bæjarins.
HYATT SANUR *****
DAGSKRÁ FERÐAR

DAGUR 1
12. mars
Leggjum af stað frá Íslandi með Icelandair og Emirates um Osló og Dubaí. Farangur innritaður alla leið. Þétt og góð tengiflug.
DAGUR 2
13. mars
HALLÓ BALÍ: lendum @16:35. Móttaka á flugvellinum og ekið til Sanúr þar sem Apríl leiðbeinir ferðalöngum um nágrenni hótelsins.
DAGUR 3 til 14
14. til 25. mars
Rólegir dagur í dásemd Sanúr. Fjöldi valfrjálsra ferða í boði auk þess sem Apríl er til aðstoðar og innlendir leiðsögumenn og umsjónaraðilar eru til taks.
DAGUR 15
26. mars
Síðasti dagurinn á Balí. Að kvöldi er haldið á flugvöll tímanlega fyrir heimflug um Dúbaí og Osló sem leggur af stað rétt eftir miðnætti.
DAGUR 16
27. mars
Heimflug. Lent á Íslandi kl 15:05 úthvíld og með sól í hjarta.
SKOÐUNARFERÐIR

HJÓLAÐ Á BALÍ – FJALLAHJÓLAFERÐ

SNORKLAÐ KÓRALRIF

AYUNG FLÚÐASIGLING – RIVER RAFTING

SURFAÐ Á BALÍ

VÖTNIN Í BALÍ – GÖNGUFERÐ

"MARINE WALK"
KORT AF BALÍ

Sólareyjan Balí í Indónesíu svíkur engan. Hvort sem þú vilt slappa af og hugleiða, taka þátt í göngutúrum og hjólaferðum, eða bara að liggja og sóla þig. Balí tilheyra nokkrar nærliggjandi eyjur á borð við Nusa Penida, Nusa Lembongan og Nusa Ceningan. Balí er staðsett á vesturhluta þessa eyjaklasa með Java í vestri og Lombok í austri. Höfuðborgin, Denpasar, er staðsett á suðurhluta eyjarinnar. Á Balí búa um fimm milljónir manna í um 600 þorpum og bæjum eyjunnar.
Innifalið í verði:
- Flug frá Íslandi til Balí fram og til baka
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska og handfarangur
- Íslensk ferðastjórn og innlendir leiðsögumenn
- Gisting með morgunverði
- Akstur á milli flugvallar og hótela
Balí hefur einkar þægilegt loftslag, sólin er gjöful, náttúran ótrúleg og menningin fjölbreytt og spennandi. En það sem stendur upp úr á Balí er lífsgleðin sem þar ríkir og fólkið sem býr á eyjunum. Balí er eins og lifandi póstkort, Indónesísk paradís.
Þar má sjá sólina rísa upp af fínum hvítum sandströndum, kafa meðfram kórölum eða um flök orrustuskipa frá seinni heimsstyrjöldinni. Inni í landi er frumskógur með gömlum hofum og fjölbreyttu dýralífi.
Flug & flugtímar*
Brottför frá Keflavík 12. mars flogið með ICELANDAIR til Osló og áfram með EMIRATES til Dubai og svo til Balí.
Brottför frá Balí 27. mars með EMIRATES í gegnum Dubai til Osló og síðan með ICELANDAIR heim.
*lágmarksbiðtími milli flugvéla - einn flugmiði :)
Við gistum í Úbúd fyrstu dagana sem hefur mestann sjarma allra bæja á Balí því þar er miðstöð lista, menningar og trúariðkunar eyjaskeggja. Seinni dagana er gist við ströndina Sanur.
Þrátt fyrir fjölda ferðamanna sem sótt hafa eyjuna heim á síðustu árum er Bali eftir sem áður dásamlegur töfrastaður sem varðveitir hindúískan menningararf sinn, trúarathafnir og heilög hof. Umgjörð Bali er fullkomin, þægilegt loftslag þar sem sólin og náttúran kallast á. Menningin er fjölbreytt og spennandi og enginn skortur er á líflegum kaffihúsum, verslunum og notalegum þorpum með vinalegum íbúum.
Tékklisti fyrir Balí:
- Sundfatnaður og sólarvörn!
- Vegabréf
- Peningar / Greiðslukort
- Ökuskírteini
- Lyfseðilsskyld lyf
- Myndavél / minniskort og hleðslutæki
- Síminn!
Skelltu þér með til Balí
Viðskiptavinir geta valið hvernig þeir vilja greiða fyrir ævintýraferðina til Balí.
- Staðfestingagjald 80.000 á mann, eftirstöðvar greiðast eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför
- Greiðslukort - ein greiðsla
- Greiðslukort - skipta greiðslu á fleiri en eitt mismunandi greiðslukort (á ekki við um tímabil)
- Raðgreiðslusamningur
- Fjórar jafnar vaxtalausar greiðslur (3,5% lántökugjald að auki)
- Kortalán án vaxta (50% út, og 50% skiptast á næstu 3 mánuði auk 3,5% lántökugjalds)
- PEI - dreifing á greiðsluseðla til allt að 6 mánaða
- Netgíró þegar bókað er hjá sölumanni Sumarferða sími 514 1400 eða í Hlíðasmára 19, 200 Kópavogi