Playa de Santa Eulalia

Iberostar Selection Santa Eulalia er gott 4 stjörnu hótel aðeins 100 m frá S‘Argamassa-ströndinni á Ibiza. 2 sundlaugar, sólbaðsaðstaða og heilsulind eru meðal þess sem er í boði fyrir gesti að nýta sér í sólinni. Aðeins fyrir 18 ára og eldri.

 

Gisting:

Herbergin eru smekkleg og hafa m.a. sjónvarp, síma, wifi, örygglishólf og loftkælingu. Öll baðherbergin hafa sturtu/baðkar og hárþurrku.

 

Aðstaða og afþreying:

2 sundlaugar eru í garði hótelsins, önnur þeirra er staðsett á þaki hótelsins. Báðar sundlaugarnar hafa sólbaðsaðstöðu og útsýni yfir haf og strönd. Heilsulind, líkamsrækt og kvöldskemmtanir eru einnig á staðnum. 

 

Veitingar: 

Veitingastaður er á hótelinu með fjölbreytta rétti við allra hæfi. Stutt er í veitingastaði og bari utan hótelsins, eða aðeins 50 m.

 

Staðsetning:

Staðsett 100 m frá strönd, 50 m frá veitingastöðum og börum við hótelið, 20 km frá næsta flugvelli. 

 

Aðbúnaður:

 

Sundlaugar

Kvöldskemmtanir

Sturta/baðkar

Sjónvarp

Ókeypis Wifi

Veitingastaður

Heilsulind

Líkamsrækt

Lotfkæling

Upplýsingar

Calle Mestral, 42 Urbanización s'Argamassa, 07849 Santa Eulalia del Río, I biza, Balearic Islands, Spánn

Kort