Platja d'en Bossa

Hotel Vira Algarb Tarida er notalegt 4 stjörnu hótel aðeins 100 m frá Playa d‘en Bossa-ströndinni á Ibiza. Sundlaug, sólbaðsaðstaða og veitingastaður eru meðal þess sem er í boði fyrir gesti að nýta sér á hótelinu. 

 

Gisting:

Herbergin eru smekkleg og hafa m.a. sjónvarp, síma, wifi, öryggishólf og loftkælingu. Öll baðherbergin hafa sturtu/baðkar og hárþurrku.

 

Aðstaða og afþreying:

Sundlaug er í garði hótelsins auk sólbaðsaðstöðu. Vel hönnuð almenn rými eru á hótelinu, innan sem og utan. Einnig er leikjaherbergi á staðnum fyrir börnin.

 

Veitingar: 

Veitingastaður er á hótelinu með fjölbreytta rétti við allra hæfi. Stutt er í veitingastaði og bari utan hótelsins, eða aðeins 50 m.

 

Staðsetning:

Staðsett 100 m frá strönd, 50 m frá veitingastöðum og börum við hótelið, 3 km frá næsta flugvelli. 

 

Aðbúnaður:

 

Sundlaug

Leikjaherbergi

Sturta/baðkar

Sjónvarp

Ókeypis Wifi

Veitingastaður

Lotfkæling

Upplýsingar

Av. Pere Matutes Noguera, 107 07800 Eivissa Illes Balears Spánn

Kort